Chablis Grand Cru Les Clos
Appellation Chablis Grand Cru Les Clos Contrôlée
  • árgangur: 2004
  • þrúga: Chardonnay
  • svæði: Búrgúnd
  • verð: 4.390 kr.
  • fæst með sérpöntun (uppselt)

Grand Cru vínekrurnar í Chablis eru tilkomumikili sjón. Þær eru alveg ofan í bænum og mynda eina samfellda hlíð. Þar á meðal er Les Clos vínekran sem þetta vín kemur frá. Framleiðsluaðferðin er svipuð og hjá 1er Cru Vaillon og sömuleiðis aldur vínviðar og þéttleiki. Þannig fara um 2/5 vínsins í eikartunnur (þar af innan við 10% nýjar), aldur vínviðar er 55 ára og þéttleiki plantna 7.000 per hektara. Þetta vín er hins vegar töluvert meira um sig, dýpra og flóknara og er það staðsetning og eðli Grand Cru vínekranna sem veldur því. Áferðin er silkimjúk og lokkandi. Afskaplega ljúft, opið og safaríkt vín sem gengur sérstaklega vel með t.d. feitari fiski eins og humri.

4 1/2 glas "Nammi, namm " Gestgjafinn. Lestu meira

Til baka

Domaine Christian Moreau
Feðgarnir Christian og Fabien Moreau endurheimtu fjölskylduvínekrurnar árið 2002 og hafa á fáeinum árum komið sér á stall meðal metnaðarfyllstu framleiðenda á svæðinu. Þeir framleiða aðallega 1er og Grand Cru Chablis. 
 

Meira um framleiðandann

 



Hvítvín

Chardonnay, 3.790 kr.

Chardonnay, 4.390 kr.



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch