Chablis 1er Cru Vaillon
Appellation Chablis 1er Cru Vaillon Contrôlée
  • árgangur: 2006
  • þrúga: Chardonnay
  • svæði: Búrgúnd
  • verð: 3.790 kr.
  • fæst í Heiðrúnu, Kringlunni, Borgartúni og Skútuvogi

Þetta er dæmigert Chablis, beinskeytt frekar en mikið um sig með áberandi steinefni og léttan sítrus í nefi. Í munni er það  létt og ferskt með góða sýru sem gerir það að svo góðu matarvíni. Það er hins vegar mýktin og fágunin, einkenni allra Christian Moreau vína, og hið glæsilega jafnvægi og hreinleiki sem gerir það að verkum að vínið stendur upp úr meðalmennskunni og setur sig á stall meðal betri 1er Cru vína frá Chablis. Um 2/5 vínsins er þroskaður í 6 mánuði í eikartunnum (þar af innqn fið 10% nýjar tunnur) og restin í stáltönkum sem gefur afskaplega vægan eikarvott. Meðalaldur vínviðar er all hár eða 50 ár. Komdu með skelfiskinn!

90 stig "Klassískur og fágaður Chablis" Mbl. Lestu meira

[2005]
5 glös Decanter

Til baka

Domaine Christian Moreau
Feðgarnir Christian og Fabien Moreau endurheimtu fjölskylduvínekrurnar árið 2002 og hafa á fáeinum árum komið sér á stall meðal metnaðarfyllstu framleiðenda á svæðinu. Þeir framleiða aðallega 1er og Grand Cru Chablis. 
 

Meira um framleiðandann

 



Hvítvín

Chardonnay, 3.790 kr.

Chardonnay, 4.390 kr.



"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway