Chablis Grand Cru Vaudesir
Appellation Chablis Grand Cru Vaudesir Contrôlée
  • árgangur: 2004
  • þrúga: Chardonnay
  • svæði: Búrgúnd
  • verð: 4.590 kr.
  • fæst með sérpöntun

Grand Cru vínekrurnar í Chablis eru tilkomumikili sjón. Þær eru alveg ofan í bænum og mynda eina samfellda hlíð. Þar á meðal er Vaudesir vínekran en vínið er eingöngu framleitt úr Chardonnay þrúgum af þeirri vínekru. Þegar komið er með þrúgurnar í hús að hausti fer fram vandleg skoðun á færibandi og allar skemmdar þrúgur vinsaðar frá áður en þeim er hellt í vínpressuna sem skilur frá hrat og stilka. Þegar gerjun er búin í stáltönkum fer vínið í eikartunnur þar sem það dvelur í fjóra mánuði. Til að stilla eikaráhrifum í hóf eru eingöngu 10% tunnanna nýjar en restin allt að þriggja ára. Niðurstaðan er mjög elegant vín, þétt með áberandi steinefnum og laufléttum, ristuðum eikarblæ.

Til baka

Domaine Christian Moreau
Feðgarnir Christian og Fabien Moreau endurheimtu fjölskylduvínekrurnar árið 2002 og hafa á fáeinum árum komið sér á stall meðal metnaðarfyllstu framleiðenda á svæðinu. Þeir framleiða aðallega 1er og Grand Cru Chablis. 
 

Meira um framleiðandann

 



Hvítvín

Chardonnay, 3.890 kr.


Chardonnay, 4.590 kr.

Chardonnay, 3.480 kr.



"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway