“Rauðvín hússins” hjá Tempier er blanda af öllum vínekrum landareignarinnar og látið þroskast í a.m.k. 18 mánuði í eikartunnum. Þótt vínið geymist jafnvel og einnarekrurauðvínin frá Tempier þá er þetta vínið til að drekka líka þegar það er ungt. Svolítið villt með angan af basíliku, lakkrís, mosa osfrv. osfrv. Karaktermikið vín með kjarnríkum mat. 2005 árgangurinn hefur mikinn sultukenndan þroska í nefi. Í munni er það hins vegar nokkuð þurrt sem gerir það að mjög góðu matarvíni.
90 stig "good potential" Robert Parker the Wine Advocate - Neal Martin
[2003]
19/20 "það er frábært núna" Mbl. Lestu dóminn
Rauðvín
Rósavín