Bandol Rosé
A.O.C. Bandol
  • árgangur: 2004
  • þrúgur: Mourvèdre (50%), Grenache og Cinsault (50%)
  • svæði: Provence
  • verð: 2.390 kr.
  • fæst í Heiðrúnu og Kringlunni
Óeikað en geymist á flöskum í 8 mánuði áður en það er sett á markað. Látið fara í gegnum malolactic gerjun að hluta þar sem eplasýru er breytt í miklu mýkri mjólkursýru sem gefur víninu rjómakennda mýkt og þéttleika. Rósavínið frá Tempier er líklegast frægasta rósavín í heimi, ekki bara vegna þess að Robert Parker kallar það “besta rósavín Frakklands” (og Frakkar gera bestu rósavín í heimi) heldur vegna þess góða orðspors sem það nýtur hvarvetna. Ilmurinn er fínlegur, kryddaður frekar en ávaxtaríkur, og vínið þétt um sig frá toppi til táar. En, þrátt fyrir allt, er rósavín jú rósavín og best að leyfa lit vínsins og stemningunni sem það skapar að njóta sín án þess að setja sig í of miklar stellingar. 2004 árgangurinn er enn í fullufjöri (síðast smakkað 2009) og á mikið eftir, hann sannar að rósavínið frá Tempier getur þroskast jafn vel og góð rauðvín.
Til baka

Domaine Tempier

Rauðvínin frá "Kastala eikarskógarins" eru hógvær á yfirborðinu en við nánari kynni verða þau djúp, gjöful, persónuleg og auðveld að líka. Svolítið eins og eigendur þeirra Alessandro og Antonietta.

Meira um framleiðandann





Rauðvín

Mourvedre, Grenache og Cinsault og Carignan, 2.890 kr.


Rósavín

Mourvèdre, Grenache og Cinsault, 2.390 kr.



"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness