Ferskt og lifandi hvítvín svo bragðlaukarnir hristast í gang — sem gerir það einmitt að svo góðu matarvíni því það lyftir upp og léttir hverja máltíð frekar en að íþyngja henni frekar með þyngd sinni. Hentar sérstaklega vel með hvers kyns grænmetisréttum, pastaréttum og skelfiski. Frá og með 2005 árgangi eru einungis notaðar þrúgurnar Vermentino og Verdicchio í staðinn fyrir að nota líka Viognier. Þeim hjá Falesco fannst nefnilega Viognier gera vínið aðeins of biturt og finnst það betra án hennar. Við erum sammála — vínið hefur aldrei verið betra.
4 1/2 glas BESTU KAUPIN "Margslunginn ilmur" Gestgjafinn. Lestu dóminn
89 stig "einfaldlega yndislegt" Mbl. Lestu dóminn
[2004]
3/5 "koma öllum í gott skap" Gestgjafinn. Lestu dóminn
19/20 "yndislegt hvítvín... Ferskt og ljúft" Mbl. Lestu dóminn
Falesco
Ofurvíngerðarbræðurnir Renzo, yfirmaður víngerðar hjá Antinori, og Riccardo Cotarella, einn áhrifamesti vínráðgjafi Ítalíu, sameina krafta sína í þessari víngerð sem hlotið hefur nánast lygilega góða dóma í ítölsku, amerísku og íslensku pressunni, ekki síst fyrir hin frábæru kaup Vitiano og fyrir Montiano, eitt best Merlot Ítalíu.
Rauðvín
Hvítvín
Sætvín