Saga vínsins er löng eða allt aftur til ársins 1111 þegar Hinrik V átti undir höndum langa leið til Rómar til að hljóta krýningu páfans. Einn fulltrúa konungs, John Deuc að nafni (Johann Defugger á þýsku), sendi aðstoðarmann sinn til að finna þá staði sem honum fannst búa til bestu vínin á leiðinni áður en konungur lagði í ferð sína þangað. Fyndi hann gott vín átti hann að setja "Est!" á hurð viðkomandi en þegar hann kom að bæjardyrum nokkrum í bænum Montefiascone á Ítalíu varð honum svo um gæði vínsins að hann merkti hurðina ekki bara "Est!" sem þýddi "hér er gott vín" heldur gott betur og rúmlega það "Est! Est!! Est!!!". Defugger fannst vínið svo gott þegar hann smakkaði það að hann framlengdi dvöl sína í bænum þegar þangað kom og drakk á endanum yfir sig og dó. Á gröf hans stendur "Út af of miklu Est! Hér hvílir meistari John Deuc". Rétt áður en henn hélt yfir móðuna miklu ánefndi hann bænum heilmikinn auð og óskaði eftir því að á hverju ári yrði hellt úr einni tunnu af víninu góða, nokkuð sem íbúar Montefiascone gera enn þann dag í dag auk þess sem vínið er nú kennt við bæði setninguna góðu og bæinn, Est! Est!! Est!! di Montefiascone. Poggo dei Gelsi er dæmi um slíkt hvítvín en dregur nafn sitt ennfremur af vínekrunni þaðan sem það kemur, í nágrenni við bæinn Montefiascone. Dæmigert ítalskt hvítvín, ferskt og léttleikandi en Poggio dei Gelsi stígur skrefi framar en flest hvítvínin frá Montefiascone því það er jafnframt nokkuð feitt í munni og hefur kryddaða tóna sem stafa af því að þrúgurnar koma af gömlum vínvið. Fjölhæft matarvín sem gengur með flestum fiskréttum allt frá ýsu til humars en líka ljósu kjöti af ýmsu tagi.
Falesco
Ofurvíngerðarbræðurnir Renzo, yfirmaður víngerðar hjá Antinori, og Riccardo Cotarella, einn áhrifamesti vínráðgjafi Ítalíu, sameina krafta sína í þessari víngerð sem hlotið hefur nánast lygilega góða dóma í ítölsku, amerísku og íslensku pressunni, ekki síst fyrir hin frábæru kaup Vitiano og fyrir Montiano, eitt best Merlot Ítalíu.
Rauðvín
Hvítvín
Sætvín