Það ríkir fremur alþjóðlegur andi yfir þessu víni enda eru þrúgurnar ekki einar af þeim staðbundnu þrúgum sem finnast svo víða á Ítalíu heldur öllu þekktari þrúgur, nefnilega Syrah og Merlot. Aðstæður í Lazio héraði eru mjög góðar fyrir þessar tvær þrúgur, sérstaklega Syrah. Syrah hlutinn fær að þroskast létt í eikartunnum í 2 mánuði og er síðan blandað saman við Merlot. Vínið er óvenju dökkt að lit miðað við ítölsk rauðvín frá þessu svæði. All blóðugt og kröftugt vín með talsvert mikla fyllingu og þéttan ávöxt. Lítill kraftabolti sem nýtur sín vel með lambakjöti og miðlungsdökku fuglakjöti.
Falesco
Ofurvíngerðarbræðurnir Renzo, yfirmaður víngerðar hjá Antinori, og Riccardo Cotarella, einn áhrifamesti vínráðgjafi Ítalíu, sameina krafta sína í þessari víngerð sem hlotið hefur nánast lygilega góða dóma í ítölsku, amerísku og íslensku pressunni, ekki síst fyrir hin frábæru kaup Vitiano og fyrir Montiano, eitt best Merlot Ítalíu.
Rauðvín
Hvítvín
Sætvín