Það hefur mikinn þokka, áberandi mýkt, dýpt og langt eftirbragð. Mátuleg sýran gerir þetta vín fyrirtaks matarvín, humar sérstaklega. Santagostino er aðeins að hluta látið þroskast í eik sem gefur því þægilegan blæ og eykur dýpt þess án þess að eikin dragi að sér of mikla athygli, minnir þannig miklu frekar á Búrgúndí en Kalíforníu.
18/20 "Ferskjur, sítrus... Rjómamjúkt" Mbl. Lestu dóminn
[2002 árg.]
19/20 "Yndislegt í alla staði" Mbl. Lestu dóminn
Eitt af 10 vínum ársins 2003 Mbl. Lestu meira
4 glös "mjög spennandi og karaktermikið" Gestgjafinn. Lestu dóminn
Firriato
Hjá Firriato er sikileyskur krafturinn haminn og taminn með alþjóðlegu hugarfari og nútímalegum framleiðsluaðferðum. Þessi frekar stóri framleiðandi er rómaður fyrir sín góðu kaup og hefur margsinnis hlotið hin eftirsóttu Tre Bicchieri í ítölsku pressunni fyrir að gera ein bestu vín eyjarinnar.
Rauðvín
Hvítvín