Þetta vín sýnir stíl hússins í hnotskurn, þ.e. einhver tælandi þokki (… sem erfitt er að lýsa með orðum). Það uppfyllir allar kröfur sem hægt er að gera til Chianti Classico víns; hin dæmigerðu dökku kirsuber og plómur, góð sýra, mátulega þægileg tannín, vottur af sætu og jarðleg element sem framkalla samstundis svipmyndir af aflíðandi hlíðum og síprustrjám Toskana hjá þeim sem þangað hefur komið. Þessa víns er hægt að njóta eins og sér en með mat sýnir það sínar bestu hliðar. Það er látið þroskast í allt að tvö ár í gömlum eikartunnum sem gefa víninu vægan og þægilegan eikarkeim.
90 stig "fantagott og drykkjahæft nú þegar" Mbl. Lestu dóminn
4 stjörnur Decanter
[2004]
88 stig "Ripe, meaty and almost earthy" Wine Spectator. Lestu dóminn
5 stjörnur "Long and pure" Decanter. Lestu dóminn
"[H]reint og beint chianti af betra taginu" Fréttablaðið. Lestu dóminn
[2003]
19/20 "Vín til að smjatta á" Mbl. Lestu dóminn
90 stig Meðal 15 framúrskarandi vína 2006 í Mbl. Lestu dóminn
4 stjörnur Decanter
[2002]
19/20 "Blómstrar með mat" Mbl. Lestu dóminn
4 glös "Ákaflega vandað og vel gert vín" Gestgjafinn. Lestu dóminn
88 stig Wine Spectator
Fontodi
Fontodi hefur verið kallaður af Wine Spectator "besti framleiðandi Chianti Classico ár eftir ár." Vínræktin er lífræn og víngerðinni stjórnað af þyngdarlögmálinu. Giovanni Manetti er allt í öllu, eigandi, framkvæmdastjóri og víngerðarmaður.
Rauðvín
Sætvín