Flaccianello
Colli Toscana Centrale I.G.T.
  • árgangur: 2006 (Nokkrar flöskur eftir af 2005)
  • þrúga: Sangiovese
  • svæði: Toskana
  • verð: 8.900 kr. (2005 kostar 8.200 kr.)
  • fæst með sérpöntun


Til ársins 2001 var þetta flaggskip Fontodi svokallað einnarekruvín frá vínekrunni Flaccianello della Pieve.  Frá og með 2001 árganginum hefur Giovanni Manetti hins vegar ákveðið að betra væri að nota ekki eingöngu þrúgur frá þeirra vínekru því hluti vínviðsins þar var orðinn gamall og er nú verið að planta þar nýjum við.  Nú er þetta 100% Sangiovese-vín framleitt úr sérvöldum þrúgum af allri landareigninni.  Þótt Giovanni útiloki ekki að þegar vínviður Flaccianello della Pieve vínekrunnar hefur náð viðunandi þroska verði vínið aftur eingöngu frá því svæði er honum mikilvægara að vínið sé fulltrúi þess besta sem er á valdi landareignarinnar, ein ekra eður ei.  Þetta vín er hágæðavín; tignarlegt, margslungið, í fullkomnu jafnvægi... þar sem aldagamlar hefðir og sérkenni Toskana eru endurvakin með nútímalegrar hugsun. Sannkallaður Súpertoskani.  2006 árgangur af Flaccianello er með rómuðustu vínum þess árs frá Toskana.

99 stig  / 8# Top 100 Wine Spectator

96 stig Robert Parker

[2005]
93 stig
Robert Parker

[2004]
96 stig
The Wine Advocate (Robert Parker)

95 stig Wine Spectator

[2003]
50 vín sem hafa breytt Ítalíu Gambero Rosso. Lestu dóminn

91 stig
" " Wine Spectator

[2001]
97 stig "Monumental [...] I have never tasted a greater wine from here " Wine Spectator

96 stig "One of the greatest Sangiovese-based wine we have ever encountered" Executive Wine Seminars

Til baka

Fontodi
Fontodi hefur verið kallaður af Wine Spectator "besti framleiðandi Chianti Classico ár eftir ár." Vínræktin er lífræn og víngerðinni stjórnað af þyngdarlögmálinu. Giovanni Manetti er allt í öllu, eigandi, framkvæmdastjóri og víngerðarmaður.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Sangiovese, 3.690 kr.

Sangiovese, 8.900 kr. 


Sætvín

Sangiovese og Malvasia, 3.390 kr.



"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness