Vin Santo
Vin Santo del Chianti Classico D.O.C.
  • árgangur: 1999
  • þrúga: Sangiovese og Malvasia
  • svæði: Toscana
  • verð: 3.217 kr. (375ml)
  • fæst í Kringlunni og Heiðrúnu og á veitingastaðnum La Primavera

Þetta "heilaga" sætvín er framleitt úr rauðvínsþrúgunni Sangiovese og hvítvínsþrúgunni Malvasia.  Þrúgurnar eru týndar í byrjun október en síðan látnar skreppa saman í herbergi þar sem er þurrt og loftar vel um í 5 mánuði eða svo.  Þá eru þrúgurnar pressaðar varlega og látnar gerjast og þroskast í a.m.k. 5 ár í misstórum tunnum, allt frá 2l.-100l., úr ólíkum tegundum af við. Útkoman er að okkar mati ómótstæðilega. Vin Santo getur verið dýsætt eða beinþurrt allt eftir því hversu stór hluti sykrumagnsins hefur umbreyst í alkóhól (þ.e. því hærra alkóhól þeim mun þurrar er vínið).  Vin Santo frá Fontodi er sá stíll sem liggur eiginlega þarna mitt á milli en er hiklaust sætt vín.  Þurrkaðar apríkósur eru sérstaklega áberandi.
Til baka

Fontodi
Fontodi hefur verið kallaður af Wine Spectator "besti framleiðandi Chianti Classico ár eftir ár." Vínræktin er lífræn og víngerðinni stjórnað af þyngdarlögmálinu. Giovanni Manetti er allt í öllu, eigandi, framkvæmdastjóri og víngerðarmaður.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Sangiovese, 2.370 kr.

Sangiovese, 5.160 kr. 

Pinot Nero, 3.300 kr.


Sætvín

Sangiovese og Malvasia, 3.217 kr.



"Rejecting a wine because it is not big enough is like rejecting a book because it is not long enough, or a piece of music because it is not loud enough."
- Kermit Lynch