Hillside
  • árgangur: 2004
  • þrúgur: Shiraz
  • svæði: McLaren Vale
  • verð: 3.990
  • fæst með sérpöntun

100% Shiraz úr vínvið sem hefur verið klónaður af Block 6 vínekrunni.  Vínviðurinn er því yngri og vínið opið og ómótstæðilegt strax við ungan aldur.  Þetta er svokallaður “blockbuster”, gríðarlegur krafturinn beislaður og taminn af 28 mánaða dvöl í nýjum, amerískum eikartunnum.  Liturinn er dökkur og bragðið djúpt og safaríkt.  Víngerðarkunnáttan sér svo til þess að vínið fari aldrei út af sporinu heldur þvert á móti hefur það aðdáunarverða jarðtengingu “terroir” sem gerir það flókið og heillandi, allt að því fágað. 

Til baka

Kay Brothers
Kay bræður eru ein elsta víngerðin í MacLaren Vale í Suður Ástralíu.  Hefðin er því sterk í þessum karaktermiklu, flóknu og bragðmiklu rauðvínum sem eru svo innilega áströlsk.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Shiraz, 4.990 kr. 

Shiraz, 3.990 kr.



"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg