100% Shiraz frá samnefndri vínekru. 1/3 kemur af 113 ára gömlum vínvið, 2/3 af 23 ára gömlum. Eins og Hillside Shiraz er það látið þroskast í 28 mánuði í amerískum eikartunnum. Vínið er dökkt, næstum svart að lit með þykkum ávexti, kryddað og flókið, með þéttum tannínum og löngu eftirbragði. Það þarf nokkur ár í flösku til að opna sig, þá verður fjandinn laus.
Þetta vín er svo sjaldgæft að það er ekki einu sinni til mynd af því.
Kay Brothers
Kay bræður eru ein elsta víngerðin í MacLaren Vale í Suður Ástralíu. Hefðin er því sterk í þessum karaktermiklu, flóknu og bragðmiklu rauðvínum sem eru svo innilega áströlsk.
Rauðvín