Það er varla hægt að bera þetta Lambrusco frá Lini saman við flest önnur slík frá héraðinu sem mest hafa selst í gegnum árin hér á Íslandi og víðast hvar annars staðar í heiminum utan Ítalíu sjálfrar. Þetta er einfaldlega öðruvísi. Það er þurrara, ferskara, með hærra áfengismagni og vandaðra á allan hátt. Reyndar er réttara að segja að þetta sé í raun ekta Lambrusco frekar en "öðruvísi" því samkvæmt hefðinni á Lambrusco að vera þurrt, sýruríkt og svalandi til að skola niður fremur þungum mat Emilia héraðsins eins og Parmeggiano osti, parmaskinu, tortellini, lasagna, mortadella pylsum og svo framvegis. Lambrusco er rauðvín og freyðivín í einu glasi.
Hlustaðu á Alicia Lini segja frá Lambrusco og lestu viðtal við hana í Mens Vogue
91 stig "lítið djásn" Mbl. Lestu meira
BESTU KAUPIN - 4 glös "Alvöru-lambrusco" Gestgjafinn. Lestu meira
Lini
Lambrusco er dýnamískt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir Lambrusco alvegi eins og á að gera það, eftir hefðinni, þurrt og ferkst.
Freyðivín