Lambrusco Scuro
Lambrusco Emilia I.G.T.
  • árgangur: 2007
  • þrúgur: Lambrusco Salamino, Lambrusco Grasparossa og Lambrusco Ancellotta 
  • svæði: Emilia-Romagna
  • verð: 2.289 kr.
  • fæst með sérpöntun

Það er varla hægt að bera þetta Lambrusco frá Lini saman við flest önnur slík frá héraðinu sem mest hafa selst í gegnum árin hér á Íslandi og víðast hvar annars staðar í heiminum utan Ítalíu sjálfrar. Þetta er einfaldlega öðruvísi. Það er þurrara, ferskara, með hærra áfengismagni og vandaðra á allan hátt. Reyndar er réttara að segja að þetta sé í raun ekta Lambrusco frekar en "öðruvísi" því samkvæmt hefðinni á Lambrusco að vera þurrt, sýruríkt og svalandi til að skola niður fremur þungum mat Emilia héraðsins eins og Parmeggiano osti, parmaskinu, tortellini, lasagna, mortadella pylsum og svo framvegis. Lambrusco er rauðvín og freyðivín í einu glasi.

Hlustaðu á Alicia Lini segja frá Lambrusco og lestu viðtal við hana í Mens Vogue

91 stig "lítið djásn" Mbl. Lestu meira

BESTU KAUPIN - 4 glös "Alvöru-lambrusco" Gestgjafinn. Lestu meira

Til baka

Lini 
Lambrusco er dýnamískt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir Lambrusco alvegi eins og á að gera það, eftir hefðinni, þurrt og ferkst.


Meira um framleiðandann

 



Freyðivín

Lambrusco Salamino, Lambrusco Grasparossa og Ancellotta, 2.289 kr.

Lambrusco Salamino og Lambrusco Sorbara, 2.289 kr.

Lambrusco Salamino og Lambrusco Sorbara, 2.289 kr.

Lambrusco Salamino og Lambrusco Ancellotta, 2.289 kr.



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch