Kemur frá vínekrum í 350-500m. hæð í Novello og Monforte d’Alba. Þrúgur af hverri vínekru fyrir sig eru handtýndar í aðeins 40 hl. per hektara, pressaðar, gerjaðar og þroskaðar í 14 mánuði í frönskum 5-600l., 2ja ára gömlum, óristuðum eikartunnum. Síðan er þeim blandað saman í ákveðnum hlutföllum svo vínið uppfylli strangar kröfur Luciano um karakter og gæði. Fyrir mér er þetta Barbera hið erkitýpíska ítalska rauðvín; mátulegur ávöxtur og sæta, plómur og biturt súkkulaði, fersk krydd, góð sýra og miðlungstannín, þokkafullt og örlítið sveitalegt en umfram allt… frábært með mat. Aðeins 15.000 flöskur framleiddar. Það má ekki gera upp á milli en þetta er eitt okkar uppáhaldsvína.
Luciano Sandrone
Luciano sjálfur er stjórinn, bróðirinn Luca vinnur erfiðisvinnuna og dóttirin Barbara sinnir markaðsmálunum. Frá einhverjum bestu vínekrum Piemonte framleiða þau saman glæsileg og eftirsótt rauðvín.
Meira um framleiðandann
Rauðvín