Barolo Cannubi Boschis
Barolo D.O.C.G.
  • árgangur: 2004
  • þrúga: Nebbiolo
  • svæði: Piemonte
  • verð: 13.500 kr.
  • uppselt

Kemur frá Cannubi Boschis vínekrunni sem er ein sú verðmætasta í Barolo.  Framleiðsluaðferðir á bak við þetta vín eru mjög svipaðar og hjá Le Vigne en vínið er fágætara því aðeins 10.000 flöskur eru framleiddar.  Þrátt fyrir að vera einnarekruvín eru gæði þess svipuð og hjá Le Vigne enda vínin með áþekkan verðmiða.  Cannubi Boschis er aðeins dekkra á lit og hefur karlmannlegri byggingu, m.a. tannískara og höfugra. 2004 árgangur er einn sá besti hingað til.

98 stig Robert Parker.

[2001]
50 vín sem hafa breytt Ítalíu Gambero Rosso. Lestu dóminn

5 stjörnur DECANTER WINES OF THE YEAR 2006 "Great depth of Flavour" Decanter.

Til baka

Luciano Sandrone 
Luciano sjálfur er stjórinn, bróðirinn Luca vinnur erfiðisvinnuna og dóttirin Barbara sinnir markaðsmálunum. Frá einhverjum bestu vínekrum Piemonte framleiða þau saman glæsileg og eftirsótt rauðvín.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Barbera, 4.425 kr. 

Nebbiolo, 13.500 kr.

Nebbiolo, 12.900 kr.

Dolcetto, 2.999 kr.



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch