Ferskur, all djúpur og kryddaður ilmur með sætum apríkósum, kanil og sítrus. Steinefnaríkt og þurrt í flottu jafnvægi. Dæmigert suðrænt kryddeftirbragð. Fjölhæft matarvín sem allir þurfa að drekka nóg af enda eru þetta kostakaup. Fínlegt á yfirborðinu en skemmtilega lúmskur og þéttur karakter sem getur örugglega þroskast í 2-3 ár.
Mas de Perry
Systkynin Stéphie og Olivier framleiða vín undir merki Mas Nicot sem eru fersk, heillandi og einstaklega góð kaup. Uppskerunni er haldið í algjöru lágmarki til að hámarka gæði þrúganna sem er fágætt fyrir svo ódýr vín.
Rauðvín
Rósavín
Hvítvín