Eitt eftirsóttast vín Ítalíu í dag, bæði fyrir gæðin og vegna þess hversu lítið er til af því, einungis 28.000 flöskur eru framleiddar árlega. Það þroskast 10 mánuði í frönskum eikartunnum og 6 mánuði í flösku áður en það fer á markað. Þetta vín er heillandi fyrir það hversu djúpt og margbreytilegt það er en ekki síður fyrir það hversu ljúflega það rennur niður. Robert Parker elskar það, ítalska pressan elskar það og við elskum það.
Montevetrano 2005 er eitt af tveimur ítölskum vínum sem 5 mikilvægustu gagnrýnendur Ítalíu eru sammála um að sé meðal bestu vína Ítalíu Lestu meira
50 vín sem hafa breytt Ítalíu Gambero Rosso. Lestu meira
Montevetrano
Riccardo Cotarella er einn af stofnendum Montevetrano víngerðarinnar og hefur æ síðan verið hennar helsti ráðgjafi. Aðeins eitt rauðvín er framleitt. Magnið er lítið og eftirspurnin mikil enda vínið eitt það eitt rómaðasta á Suður Ítalíu.
Rauðvín