Terra Antiga Vinho Verde
Vinho Verde D.O.C.
  • árgangur: 2008
  • þrúgur: Trajadura og Alvarinho
  • svæði: Norte
  • verð: 1.890 kr. 
  • fæst í öllum stærstu Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ

Nafnið, Vinho Verde, þýðir "græn vín". Þótt fölgrænan blæ megi sjá á lit Terra Antiga þá er nafngift þessarar víngerðarhefðar frekar rakin til ferskleika vínanna en litar. Vinho Verde hvítvín koma eingöngu frá N-Portúgal og nyrst á því svæði í þorpinu Melgaço, rétt við landamæri Spánar, eru vínekrurnar sem gefa okkur þennan fulltrúa. Áfengismagnið er líka lágt, 11%. Svo er það frísklegt svo um munar enda örlar á loftbólum samkvæmt hefð Vinho Verde hvítvína þótt það sé langt frá því að teljast freyðivín. Getur gengið í stað freyðivína sem fordrykkur og með hverslags léttari réttum, skelfisk og pasta. Brúðkaupsvín.

GYLLTA GLASIРVínþjónasamtök Íslands- viðurkenning fyrir gott vín á góðu verði. Lestu meira

4 glös BESTU KAUPIN "Loksins, loksins ..." Gestgjafinn. Lestu meira

3 stjörnur "Ferskur fordrykkur" Vínótek. Lestu meira

Til baka

Quintas de Melgaço 
Samlag yfir 400 bænda í kringum bæinn Melgaço, nyrst í Portúgal rétt við landamæri Spánar.


Meira um framleiðandann

 


Hvítvín

Trajadura og Alvarinho, 1.890 kr.




"Rejecting a wine because it is not big enough is like rejecting a book because it is not long enough, or a piece of music because it is not loud enough."
- Kermit Lynch