Þetta fágæta sætvín kúldrast í litlum viðartunnum í 5 ár eða svo þegar það er loks sett á flöskur. Það er beinþurrt en með sætum ilmi af þurrkuðum ávöxtum af ýmsu tagi þar sem rúsínur, apríkósur og sveskjur eru mest áberandi. Það hefur 19% áfengismagn sem þýðir að mikill sykur hefur verið látinn gerjast og því lítið af honum eftir í víninu sjálfu og vínið þar af leiðandi þurrt. Minnir dálítið á sérrí. .
Lestu um hvernig Vin santo eru búin til á blogginu.
Rauðvín
Sætvín
Sterk vín