Louis Barruol er maður á bak við Saint Cosme vínin. Hann leyfir sér að stíga aðeins út fyrir ramma hefðarinnar með Little James vínunum; skírði þau eftir syni sínum á ensku og hannaði miða sem voru vægast sagt óhefðbundnir. En við skulum þó hafa eitt í huga — Little James vínin eru frönsk, frönsk, frönsk, umfram allt. Little James rauðvínið er úr 100% Grenache þrúgunni, feykilega karaktermikið og gott matarvín sem fangar anda Rónarhéraðsins. 2007 árgangur er í aðalhlutverki en nokkrum eldri árgöngum er blandað saman við eftir solera aðferðinni til að auka karakter enn frekar. Bragðmikið og fjörlegt vín.
3 stjörnur "alvöru Rhone-einkennum" Vínótek. Lestu meira
4 glös "Smellpassar með grillkjöti" Gestgjafinn. Lestu meira
Saint Cosme
Hjarta víngerðarinnar slær í Gigondas en þræðirnar teygja sig út um allt Rónarhéraðið, frá suðri til norðurs. Louis Barruol er maðurinn á bak við vínin sem slegið hafa í gegn.
Rauðvín
Hvítvín