Louis Barruol er maður á bak við Saint Cosme vínin. Hann leyfir sér að stíga aðeins út fyrir ramma hefðarinnar með Little James vínunum; skírði þau eftir syni sínum á ensku og hannaði miða sem voru vægast sagt óhefðbundnir. En við skulum þó hafa eitt í huga — Little James vínin eru frönsk, frönsk, frönsk, umfram allt. Little James hvítvínið er blanda af Viognier og Sauvigon Blanc og kemur af vínekrum sem Louis plantaði í nágrannahéraðinu Languedoc. Það er ilmríkt með fjölegan karakter eins og rauðvínið. Þótt Little James vínin séu hressileg eins og miðinn þeirra er ekkert gefið eftir þegar kemur að vöndun framleiðslunnar.
4 stjörnur "einstaklega aðlaðandi hvítvín" Vínótek. Lestu meira
4 glös VÍN MÁNAÐARINS "margslungið" Gestgjafinn. Lestu meira
Saint Cosme
Hjarta víngerðarinnar slær í Gigondas en þræðirnar teygja sig út um allt Rónarhéraðið, frá suðri til norðurs. Louis Barruol er maðurinn á bak við vínin sem slegið hafa í gegn.
Rauðvín
Hvítvín