Glæsilegt rauðvín frá norðurhluta Rónarhéraðs. Þroskað 12 mánuði í frönskum eikartunnum sem eru aðeins að hluta nýjar svo eikaráhrifin verða ekki of mikil. Fágun og klassi minnir okkur á Luciano Sandrone vínin frá Piemonte á Ítalíu en um leið gleymist ekki að gera vínin safarík og gómsæt. Gott rauðvín frá Suður Frakklandi eins og þetta sameinar margt það besta frá öðrum svæðum landsins, fínleika Búrgúndarvína, fágun Bordaux vína og þroska og lífsþrótt suðursins. "Langt" og "margslungið" eins og segir á vefsíðu vínbúðanna.
Saint Cosme
Hjarta víngerðarinnar slær í Gigondas en þræðirnar teygja sig út um allt Rónarhéraðið, frá suðri til norðurs. Louis Barruol er maðurinn á bak við vínin sem slegið hafa í gegn.
Rauðvín
Hvítvín