Skiki sérhvers bónda er gerjaður út af fyrir sig svo hægt sé að vega og meta ólíka eiginleika þeirra og hlutverk í lokablöndunni. Upphaflega komu allar þrúgur frá St. Valentin vínekrunni sem vínið dregur nafn sitt af og þótt flestar þrúgurnar komi þaðan ennþá er vínið nú framleitt úr bestu Sauvignon Blanc þrúgum fyrirtækisins hvaðan sem þær koma Þetta er tvímælalaust það vín sem átt hefur hvað stærstan þátt í að skapa hróður fyrirtækisins og ef bornar væru saman bækur hinna ýmsu ítölsku víngagnrýnenda kæmi í ljós almenn niðurstaða að þetta vín sé meðal 10 bestu hvítvína Ítalíu. Gæðin birtast í skörpum ilmi, þroskuðum ávexti og fullkomnu jafnvægi. Vínið fær enga snertingu við eik.
50 vín sem hafa breytt Ítalíu Gambero Rosso. Lestu dóminn
San Michele Appiano
Fundarborðið er langt enda meðeigendur Appiano 350 talsins. Hanz Terzer, sem valinn hefur verið besti víngerðarmaður Ítalíu af Gambero Rosso, stýrir framleiðslunni.
Meira um framleiðandann
Rauðvín
Hvítvín