Þurr Riesling vín eru oft beinskeytt og sýrurík sem gerir þau einmitt að einhverjum bestu matarvínum sem völ er á. Riesling Montiggl frá San Michele Appiano er þar engin undantekning. Ilmurinn af því er opinn með tóna af ferskjum, gulum perum, blæjuberjum, og hvort ef ekki smávegis bönunum, auk leirs sem jarðtengir vínið á skemmtilegan hátt. Ferskt og ljúft. Í munni er mikið jafnvægi, allt þétt og lifandi með löngu eftirbragði. Frábært með fiski en gott eitt og sér.
88 stig "Mikil fylling og þykkt með langan endi" Mbl. Lestu dóminn
San Michele Appiano
Fundarborðið er langt enda meðeigendur Appiano 350 talsins. Hanz Terzer, sem valinn hefur verið besti víngerðarmaður Ítalíu af Gambero Rosso, stýrir framleiðslunni.
Meira um framleiðandann
Rauðvín
Hvítvín