Þetta hvítvín er freyðandi en ekki nógu mikið samt til að geta kallast hreinræktað freyðivín. Þess vegna flokkum við það með hvítvínum þótt vissulega sé stíllinn ansi nálægt hefðbundnum freyðivínum. Frizzando er framleitt eins og freyðivín en gerjunin er stöðvuð aðeins fyrr og þar af leiðandi freyðir það minna jafnframt sem svolítill hluti af ávaxtasætunni situr eftir í víninu. Þetta er alls ekki sætt vín heldur en hefur þennan daufa sætuvott sem gerir það svo aðlaðandi. Fjölhæft vín sem gengur léttilega í öll freyðivínshlutverk auk þess að brúkast vel með mat eins og ef um hefðbundið hvítvín væri að ræða. Sætuvotturinn, þótt lítill sé, gerir það síðan líka góðan kost í lok matar í stað sætvíns. Vín sem gengur í allt - er það virkilega til?
88 stig "einn af sumarsmellunum 2007" Mbl. Lestu dóminn
Sandhofer
Lítið fjölskyldufyrirtæki sem nýtur þess að vera staðsett í einu fallegasta héraði Austurríkis. Sandhofer systkynin eiga víngerðina en Hubert rekur fyrirtækið ásamt því að vera virkur söngvari.
Meira um framleiðandann
Hvítvín
Rósavín
Rauðvín