Grüner Veltliner
Neusiedlersee-Hügelland
  • árgangur: 2007
  • þrúga: Grüner Veltliner
  • svæði: Burgenland
  • verð: 2.689 kr.
  • fæst í öllum Vínbúðum á stór-Reykjavíkursvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi og VOX

Grüner Veltliner frá Sandhofer er fyrsta vínið sem við tökum þátt í að búa til, ef svo má segja. Hubert Sandhofer lagði til nokkur hvítvín úr Grüner Veltliner þrúgunni sem öll höfðu örlítið mismunandi karakter og völdum við síðan tvö sem okkur þótti best og er þetta lokavín millivegur milli þeirra. Ilmurinn af víninu er sætkryddaður með þroskuðum perum, læmi, blæjuberjum og votti af hunangi og fersku kryddi í bakgrunni. Hvítur pipar finnst bæði í nefi og munni, sérstaklega í eftirbragðinu. Góð meðalfylling, ekki of þurrt en mátulega sýruríkt til að gera það fersklegt og frískandi. Fjölhæft matarvín sem getur gengið með flestum fisk-réttum og léttari kjötréttum svo sem kjúklingi og grilluðu svínakjöti.

Flöskuna prýðir miði með mynd úr málverki eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur, hannaður fyrir íslenskan markað af Ámunda Sigurðssyni.

4 glös "Matarvænt og vel gert!" Gestgjafinn. Lestu meira

Til baka

Sandhofer
Lítið fjölskyldufyrirtæki sem nýtur þess að vera staðsett í einu fallegasta héraði Austurríkis. Sandhofer systkynin eiga víngerðina en Hubert rekur fyrirtækið ásamt því að vera virkur söngvari.

Meira um framleiðandann

 

 

Hvítvín

Grüner Veltliner, Sauvignon Blanc og Muskat Ottonel, 2.689

Grüner Veltliner, 2.689 kr.


Rósavín

Cabernet Sauvignon og Blaufränkisch, 2.689 kr.


Rauðvín

St. Laurent, 2.672 kr.



"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg