St. Laurent Reserve
Neusiedlersee-Hügelland
  • árgangur: 2006
  • þrúga: St. Laurent
  • svæði: Burgenland
  • verð: 2.672 kr.
  • fæst í Heiðrúnu og Kringlunni

Sandofer gerir mörg rauðvín en þegar kom að því að velja hvert þeirra við vildum fyrstu bjóða íslenskum vínunnendum upp á þá varð þetta rauðvín úr Reserve-línu framleiðandans fyrir valinu. Ástæðurnar eru tvær, okkur finnst vínið flott út af fyrir sig, vel byggt og heillandi en líka finnst okkur það vera týpískt fyrir landið sem það kemur frá, Austurríki, með nýjum og skemtilegum karakter sem við höfum ekki flutt inn áður. Vínið samsvarar sér mjög vel í ilmi og bragði með pipruðum karakter, lyngi, eik og berjakenndum ávexti. Liturinn hefur ljósan blæ sem minnir á þrúguna Pinot Noir og áferðin er öll fáguð en karakterrík.

Flöskuna prýðir miði með mynd úr málverki eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur, hannaður fyrir íslenskan markað af Ámunda Sigurðssyni.

Vín mánaðarins - 4 glös "Fágað vín með góða fyllingu og mikinn sjarma" Gestgafinn. Lestu dóminn 

Til baka

Sandhofer
Lítið fjölskyldufyrirtæki sem nýtur þess að vera staðsett í einu fallegasta héraði Austurríkis. Sandhofer systkynin eiga víngerðina en Hubert rekur fyrirtækið ásamt því að vera virkur söngvari.

Meira um framleiðandann

 

 

Hvítvín

Grüner Veltliner, 2.021 kr.


Rósavín

Cabernet Sauvignon og Blaufränkisch, 2.021 kr.


Rauðvín

St. Laurent, 2.672 kr.



Once ... in the wilds of Afghanistan, I lost my corkscrew, and we were forced to live on nothing but food and water for days.

W. C. Field