Í þeim all mörgu vínsmökkunum sem við höfum tekið þátt í með vínum frá Sandhofer hefur þetta rósavín alltaf verið eitt þeirra vína sem hafa staðið upp úr breiðri línu framleiðandans. Eða kannski er réttara að segja að á meðan sumum finnst ákveðin rauðvín eða hvítvín framleiðandans betri en önnur eru alltaf allir sammála um að rósavínið er mikið kostavín. Ímynd rósavína hefur undanfarið verið frekar veik en jafnt og þétt eru þau að sækja í sig veðrið eftir því sem fólk áttar sig á því hversu góð rósavín geta orðið og hversu fjölbreytileg og matarvæn þau eru. Rósavín geta nefnilega oftar en ekki gengið í hlutverk bæði hvítvína og rauðvína og ættu samkvæmt því að skipa mun hærri sess meðal léttvína. Rósavínið frá Sandhofer undantekning. Það er lifandi með heillandi ilmi, létt og frísklegt ef því er að skipta en alls ekki grunnt eða yfirborðskennt heldur hefur það flottan karakter, jarðbundin og áhugaverðan.
Flöskuna prýðir miði með mynd úr málverki eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur, hannaður fyrir íslenskan markað af Ámunda Sigurðssyni.
4 glös "rósavín með bein í nefinu " Gestgjafinn. Lestu meira
Sandhofer
Lítið fjölskyldufyrirtæki sem nýtur þess að vera staðsett í einu fallegasta héraði Austurríkis. Sandhofer systkynin eiga víngerðina en Hubert rekur fyrirtækið ásamt því að vera virkur söngvari.
Meira um framleiðandann
Hvítvín
Rósavín
Rauðvín