Sine Qua Non
  • Svæði: Kalifornía, Central Coast 
  • Eigandi: Manfred Krankl
  • Stofnað: 1993
  • Framleiddar flöskur: 45.000
  • Hektarafjöldi: 15h
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 80%, restin af leigðum vínekrum 
  • Vefur: engin vefsíða


Sine Qua Non er hugarfóstur hjónanna Elaine og Manfred Krankl, ævintýri sem hófst þegar Manfred var innkaupastjóri á veitingastað í Kaliforníu og fór að láta búa til fyrir sig vín handa gestum staðarins. Víngerðin vatt upp á sig og hjónin ákváðu að stofna víngerð í vöruhúsi og leigja vínekrur til vínræktar.

Þegar fyrsta vínið undir nafni Sine Qua Non kom á markað létu viðbrögðin ekki á sér standa. Robert nokkur Parker komst í tæri við flösku af Shiraz 1994, gaf því 95 stig og það var ekki aftur snúið. Parker hefur alla tíð síðan verið yfir sig hrifinn af vínunum og gefið þeim m.a. hæstu einkunn, 100 stigin eftirsóttu, auk þess að velja víngerðina í bók sína The World´s Greatest Wine Estates.

Eftirspurn eftir vínum þeirra er langt umfram framboð. Vínin eru svokölluð póstlistavín, þau eru nánast eingöngu seld til einkaaðila sem eru á póstlista fyrirtækisins. Fæstir fá fleiri en 6 flöskur alls og það er langur biðlisti. Flöskurnar dúkka upp á uppboðum fyrir margfalt verð og hafa reynst góð fjárfesting.

Smám saman hafa hjónin verið að segja upp leigusamningum á vínekrum og kaupa sínar eigin. Við það hefur framleiðslan aukist lítillega og því fannst Manfred það góð hugmynd að leyfa Íslendingum að njóta þeirra.

Tvö rauðvín eru gerð, Shiraz og Grenache. Þau skipta um nafn og miða á hverju ári sem Manfred hannar sjálfur eða eins og Manfred sagði okkur þá eru þetta börnin hans, hver nýr árgangur er sérstakur og verðskuldar sitt eigið nafn og miða. Miðann hannar hann sjálfur vegna þess einfaldlega að honum finnst það gaman.

 

Smelltu hér til að hlusta á viðtal við Manfred Krankl - fyrri hluta

Smelltu hér til að hlusta á viðtal við Manfred Krankl - síðari hluta

 


Rauðvín

Grenache, 17.900 kr.

Syrah, 17.900 kr.



 

I think I am beginning to understand why they are so much greater than just about every other Syrah or Grenache-based wine in California. In short, it is talent and incredibly meticulous hard work. No one works as hard or is as maniacal about a vineyard’s viticulture and winemaking as Manfred Krankl. Take that, add in exceptional talent, humility, top-notch vineyards, and I believe I understand the fundamentals of why these wines are so special.

- Robert Parker


"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson