Labels Syrah
  • árgangur: 2007
  • þrúga: Syrah
  • svæði: Central Coast í Kaliforníu
  • verð: 17.900 kr.
  • uppselt
Í Syrah þrúgurnar er bætt um 5% Grenache og 2% Viognier sem gefa því flóknari karakter. 43% af öllum þrúgum eru af þeirra eigin vínekru Eleven Confessions en restin kemur frá White Hawke, Alban og Bien Nacido vínekrunum. Manfred segir að stíll þessa víns liggi einhvers staðar á milli hins kröftuga 2004 árgangs og fínlegri 2003 árgangs. 2005 er fyrsti árgangur af þessu víni þar sem Manfred lætur hluta þrúganna, 25%, gerjast í heilu lagi (whole clusters) í stað eingöngu stakra berja (destemmed) sem hann telur gefa víninu m.a. meira krydd en vanalega. Það er ekki sett í gegnum neina filtera heldur er eingöngu eggjahvíta (tvær eggjahvítur per tunnu fyrir um 3/4 vínsins) notuð til að hreinsa vínið. Þroskað 21 og hálfan mánuði í frönskum eikartunnum (1/10 eru amerískar), 64% er nýjar, og síðan sett á flöskur með þyngdarlögmálsflæði. Áfengismagn er 15.7%.
 
[2006]
100 stig "nuanced, elegant and complex" Robert Parker. Lestu meira

(95-97 stig) "a stunningly long finish" Robert Parker. Lestu meira
Til baka

Sine Qua Non
Manfred Krankl býr til vín sem með réttu geta kallast einhver eftirsóttustu vín Kaliforníu. Á hverju ári fá þau nýtt nafn og miða sem Mafnred hannar sjálfur. Sannkallaður "cult" framleiðandi.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Syrah, 17.900 kr.

Grenache, 17.900 kr.



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch