Pictures Grenache
  • árgangur: 2007
  • þrúga: Grenache
  • svæði: Central Coast í Kaliforníu
  • verð: 17.900 kr.
  • uppselt
Grenache þrúgurnar í þessu víni koma nánast eingöngu af vínekrum í eigu víngerðarinnar fyrir utan 3% sem koma frá Alban vínekrunni. Á móti Grenache er svo sett um 7% Syrah í lokablönduna. Í samanburði við 2004 Grenache frá víngerðinni segir Manfred að þessi árgangur hafi meira "garrigue", þ.e.a.s. villigróður, skógarbotn og slíkt. Kröftugt og óvenju dökkt miðað við Grenache vín en heldur fínleikanum. 2005 er fyrsti árgangur af þessu víni þar sem Manfred lætur hluta þrúganna, um helming, gerjast í heilu lagi (whole clusters) í stað eingöngu stakra berja (destemmed) sem hann telur gefa víninu m.a. meira krydd en vanalega. Það er ekki sett í gegnum neina filtera heldur er eingöngu eggjahvíta (tvær eggjahvítur per tunnu) notuð til að hreinsa vínið. Þroskað 22 mánuði í frönskum eikartunnum, 54% er nýjar, og síðan sett á flöskur með þyngdarlögmálsflæði. Áfengismagn er 15.6%.
 
[2006] 
98 stig "an amazing red" Robert Parker. Lestu meira

(96-98 stig) "elegance and phenomenal definition" Robert Parker. Lestu meira
Til baka

Sine Qua Non
Manfred Krankl býr til vín sem með réttu geta kallast einhver eftirsóttustu vín Kaliforníu. Á hverju ári fá þau nýtt nafn og miða sem Mafnred hannar sjálfur. Sannkallaður "cult" framleiðandi.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Syrah, 17.900 kr.

Grenache, 17.900 kr.



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch