Torbreck
  • Svæði: Barossa
  • Eigandi: David Powell
  • Stofnað: 1994
  • Framleiddar flöskur: 500.000
  • Hektarafjöldi: (í einkaeigu og leigðar)
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 70%
  • Meðalaldur vínviðar: 50-125 ára, sá elsti 154 ára
  • Vefur: www.torbreck.com 

Í þeirri bylgju smárra, ástralskra hágæðavínframleiðanda sem skollið hefur á markaðinn á síðustu fáeinum árum, ekki síst frá Barossa dalnum í S-Ástralíu, hafa fáir hlotið meiri athygli og lof en Torbreck. 

Stofnandinn, David Powell, vann og lærði af fremstu víngerðarmönnum S-Ástralíu.  Á ferðalögum sínum til Kalíforníu og Evrópu kynntist hann ólíkum straumum og stefnum, bæði nýjungum og ríkum hefðum.  Það var ekki síst á þessum ferðalögum sem hann lærði að bera virðingu fyrir jarðveginum og umhverfinu (terroir) og það var sú hugsun sem gerði honum síðar kleyft að hámarka þá möguleika sem bjuggu í Barossa dalnum. 

David byrjaði að kaupa hágæða ávöxt af öldnum vínvið örsmárra vínberjaræktenda sem hafði lifað af “Vine Pull” stefnu ástralskra stjórnvalda sem fólst í því að rífa upp gamlan vínvið og planta nýjum í staðinn.  Úr þessum aldna við kreisti hann fáeinar tunnur en fljótlega jókst umfangið þannig að innan tíðar var stór hluti framleiðslunnar kominn í eigu fyrirtækisins þótt leigðar ekrur og aðkeyptar þrúgur séu ennþá stór þáttur í gæðaframleiðsluferli þess.

Öll víngerð hjá Torbreck er svokölluð “non-interventionist” þ.e.a.s. að mannleg afskipti, svo ekki sé nú minnst á vélar eða áburð, trufli sem minnst ferlið frá beri til afurðar.  Þannig eru möguleikar þrúgunnar, lands og umhverfis hámarkaðir.  Notaðar eikartunnur spila stórt hlutverk svo að eikartónar verði ávallt hóflegir og aldrei yfirgnæfandi.  Vínin eru geysilega bragðmikil en svo vel gerð að áferðin er áberandi silkimjúk og jafnvægið fullkomið.

David vann um tíma við skógarhögg í Skotlandi og er nafnið, Torbreck, tilvísun í samnefndan skóg þar í landi jafnframt sem heiti flestra vínanna er fengið þaðan.



View Vínframleiðendur í Ástralíu in a larger map


Rauðvín

Shiraz, 4.290 kr.

Shiraz, 2.290 kr. 


Hvítvín




 


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway