Ólíkt öðrum rauðvínum frá Torbreck er hér um tiltölulega ungan vínvið að ræða þótt hússtíllinn sé augljós. Vínið er þroskað í stórum, frönskum foudres-eikartunnum (u.þ.b. 2.500-5000 l. að stærð) sem gefur víninu passlegan eikarblæ. Nafnið vísar til skógarhöggsára Davids í Skotlandi. Mikil ilmfantasía, sulta, salmíak, soðið grænkál, nammihlaup og bláberjasaft. Bragðmikið og einstaklega karaktermikið.
18/20 "djúpur og mikill" Mbl. Lestu dóminn
Torbreck
Torbreck er einhver skærasta stjarna Ástralíu um þessar mundir. Gamall vínviður býr til kröftug vín beisluð af geysilega hæfileikaríku víngerðarteymi og sett í silkihanska.
Rauðvín
Hvítvín