Cuvée Juveniles
Barossa
  • árgangur: 2006
  • þrúgur: Grenache, Shiraz og Mourvédre
  • svæði: Barossa
  • verð: 2.477 kr.
  • fæst í Heiðrúnu og Kringlunni

Þetta heillandi vín kemur af gömlum vínvið, 40-150 ára, og er samsett af þrúgunum Grenache (60%), Shiraz (20%) og Mourvedre (20%, heitir Mataro í Ástralíu), svokölluð GSM blanda, og er algjörlega óeikað.  Það er mjög þroskað og bragðmikið, allt að því portvínslegt en engu að síðar ferskt og auðdrekkanlegt (ég get borið því vitni).  Einfaldlega ómótstæðilegt og freistandi vín (ég get líka borið því vitni).  Skírt eftir Juveniles vínbarnum í París sem óskaði eftir víni af þessari sort.

91 stig "excellent depth, light tannin" The Wine Advocate. Lestu dóminn 

Til baka

Torbreck
Torbreck er einhver skærasta stjarna Ástralíu um þessar mundir. Gamall vínviður býr til kröftug vín beisluð af geysilega hæfileikaríku víngerðarteymi og sett í silkihanska.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Grenache, Shiraz og Mourvédre., 2.477 kr.

Shiraz og Viognier, 12.900 kr.

Shiraz og Viognier, 7.900 kr.

Shiraz, 7.900 kr.

Grenache, Shiraz og Mourvédre (GSM), 2.900 kr.

Shiraz, 4.113 kr.

Shiraz, 2.190 kr. 


Hvítvín

Semillon, 2.290 kr.



"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness