Ef hægt er að toppa The Factor þá gæti Run Rig tekist það, naumlega þó. Vínið er samsett af 96.5% Shiraz og 3.5% Viognier. Viognier er einstaklega ilmrík hvítvínsþrúga sem setur skemmtilega yfirtóna á vínið. Shiraz þrúgurnar eru þroskaðar 30 mánuði í frönskum eikartunnum (40% notaðar, 60% nýjar) en Viogner í aðeins 6, þeim er svo blandað saman rétt áður en vínið er sett í flöskur. Shiraz uppskeran er aðeins 14.5 hl./h. sem þýðir að vínviðurinn hefur eytt allri sinni orku í að búa til pínulítið magn af ávexti og gæðin því há eftir því. Nafnið, Run Rig, er heiti á kerfi sem deilir landi milli bænda á skosku hálendunum, og einnig á skoskri þrjóðlagahljómsveit.
99 stig "complex collection of sensory stimuli" The Wine Advocate. Lestu dóminn
Torbreck
Torbreck er einhver skærasta stjarna Ástralíu um þessar mundir. Gamall vínviður býr til kröftug vín beisluð af geysilega hæfileikaríku víngerðarteymi og sett í silkihanska.
Rauðvín
Hvítvín