100% Shiraz, eingöngu frá Barossa dalnum. Einstaklega áhrifamikið vín, kröftugt og bragðmikið. En eins og öll vín frá Torbreck er ávöxturinn haminn undir silkimjúkri slæðu sem gefa vínið jafnframt fágað. Vínið er þroskað í frönskum eikartunnum (70% gamlar, 30% nýjar). Nafnið er starfsheiti verkstjóra á skosku hálendunum. Hiklaust eitt stórfenglasta vín sem ég hef drukkið á ævinni.
97 stig "totally hedonistic turn-on" The Wine Advocate. Lestu dóminn
Torbreck
Torbreck er einhver skærasta stjarna Ástralíu um þessar mundir. Gamall vínviður býr til kröftug vín beisluð af geysilega hæfileikaríku víngerðarteymi og sett í silkihanska.
Rauðvín
Hvítvín