Umani Ronchi
  • Svæði: Le Marche og Abruzzo
  • Eigandi: Bianchi Bernetti fjölskyldan
  • Ráðgjafi: Beppe Caviola
  • Stofnað: 1955 af samnefndum Umani Ronchi
  • Framleiddar flöskur: 4.400.000
  • Hektarafjöldi: 200 h. af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 80%
  • Mottó: Al Cuore del Vino
  • Vefur: www.umanironchi.it

Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum. Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele.

Þegar við Rakel vorum að læra í Boston leituðum við uppi vín sem gáfu mikið fyrir lítið verð og einn góðan veðurdag árið 1998 varð hvítvínið Casal di Serra frá Umani Ronchi fyrir valinu. Svo mikið fannst okkur til þessa víns koma að þegar Vín & matur hóf starfsemi sína árið 2003 var þetta fyrsta vínið sem flutt var inn. Víngagnrýnendur á Íslandi sem og neytendur tóku víninu einstaklega vel og er vínið mest selda vínið sem við flytjum inn í dag. Það má því segja að Umani Ronchi og Casal di Serra sé ákveðinn hornsteinn í sögu Víns & Matar.

Umani Ronchi á vínekrur í tveimur nágrannahéruðum á Ítalíu, Le Marche og Abruzzo. Öll helstu hvítvínin koma frá Le Marche m.a. nokkrar útgáfur af Verdicchio dei Castelli di Jesi D.O.C. – sem eru hvítvín kennd við bæinn Jesi og sem eru að öllu leyti úr þrúgunni Verdicchio (t.d. Casal di Serra og Plenio).  Verdicchio þrúgunni hefur verið lýst sem einni bestu sér-ítölsku hvítvínsþrúgunni og er það m.a. brautryðjendum eins og Umani Ronchi að þakka.  Mikilvægasta rauðvínsþrúga Umani Ronchis er hins vegar Montepulciano sem vex bæði í Le Marche og Abruzzo og framleiðir þar m.a. Rosso Conero D.O.C. (t.d. Cumaro og San Lorenzo) annars vegar og Montepulciano d’Abruzzo D.O.C. (t.d. Jorio) hins vegar.



View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map


Rauðvín

Montepulciano, 3.090 kr.

Montepulciano og Sangiovese, 1.949 kr.


Hvítvín

Verdicchio, 2.571 kr.

Pecorino, 2.204 kr.

Verdicchio, 1.789 kr.




 


"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson