Einnarekruvín frá Casal di Serra vínekrunni. Þrúgurnar eru týndar aðeins ofþroskaðar og vínið látið þroskast sur lie sem hvort tveggja gerir vínið bragðmikið og kröftugt. Það er mjög ilmríkt, ávaxtaríkt og hefur mjúka áferð. 3-4% berjanna er látin þroskast í eikartunnum (restin í stáltönkum) sem gerir vínið flóknara og kryddaðra. Vinsældir Casal di Serra liggja í því að vínið höfðar bæði til unnenda ítalskra hvítvína og þeirra sem vanari eru Nýja Heims vínum t.d. Chardonnay.
[2006]
90 stig "eitt af bestu hvítvínskaupunum í vínbúðunum" Mbl. Lestu dóminn
Lestu meira um vínið á vefsíðu Umani Ronchi
[2005]
4 glös "Mjög góð kaup" Gestgafinn. Lestu dóminn
[2002]
4 glös "ljúffengt með mikinn persónuleika" Gestgafinn. Lestu dóminn
[2001]
19/20 "hrífur mann með sé" Mbl. Lestu dóminn
Umani Ronchi
Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum. Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele og gera þeir einhver bestu vín svæðisins.
Meira um framleiðandann
Rauðvín
Hvítvín