Plenio
Verdicchio dei Castelli di Jesi Classico Riserva D.O.C.
  • árgangur: 2004
  • þrúga: Verdicchio
  • svæði: Le Marche
  • verð: 1.690 kr.
  • fæst í Kringlunni og Heiðrúnu

Framleitt úr bestu Verdicchio þrúgum Villa Bianchi vínekrunnar, u.þ.b. 50hl/h. Vínið er Riserva sem þýðir að það þarf að þroskast í 24 mánuði áður en það er sett á markað —þetta vín hefur þroskast 12 mánuði sur lie í sementstönkum og síðan 12 mánuði í flösku en hluti vínsins (30%) er þroskaður í frönskum eikartunnum í 6 mánuði áður en honum er bætt saman við. Ilmurinn er ekki eins ferskur og í Casal di Serra þar sem vínið hefur elst lengur og áhrifa eikur gætir aðeins meira (afar hóflega þó) — í staðinn er Plenio enn mýkra, dýpra og með meiri fyllingu. 

Til baka

Umani Ronchi
Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum.  Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele og gera þeir einhver bestu vín svæðisins.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín



Hvítvín

Verdicchio, 2.689 kr.

Verdicchio, 1.890 kr.



"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway