Cúmaro Riserva
Rosso Conero Riserva D.O.C.G.
  • árgangur: 2004
  • þrúga: Montepulciano
  • svæði: Le Marche
  • verð: 3.090 kr.
  • fæst með sérpöntun

Framleitt úr sérvöldum Montepulciano þrúgum frá San Lorenzo vínekrunni í Le Marche héraðinu. Aukin gæði og kraftur þrúganna gera því kleyft að þroskast 14 mánuði í frönskum eikartunnum án þess að ávöxturinn lúti í lægra haldi fyrir eikinni. Eikin er reyndar hófleg og ávöxturinn ríkur. Vínið er kryddað og öflugt og hefur skemmtilega jarðbundna undirtóna, áferðin er áberandi silkimjúk og eftirbragðið langt. "Riserva" nafnbótin sem vínið hlaut nýlega þýðir að framleiðsluaðferðir eru enn strangari en fyrr og gæðin meiri sem er undirstrikað með nýjum flöskumiða. Unaðslegt vín.

Regional Italy Red - Over £10 Trophy Decanter 

Til baka

Umani Ronchi
Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum.  Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele og gera þeir einhver bestu vín svæðisins.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Montepulciano, 3.090 kr.

Montepulciano og Sangiovese, 1.949 kr.


Hvítvín

Verdicchio, 2.571 kr.

Pecorino, 2.204 kr.

Verdicchio, 1.789 kr.



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch