Skemmtilegt rauðvín með sveitalegum jarðar- og gróðurilmi sem minnti okkur á Bordeaux. Það er óeikað, all þétt og karaktermikið. Góð mýkt. Fjölhæft matarvín sem getur gengið með pizzum, pasta og hvers konar kjöti og pottréttum.
Umani Ronchi
Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum. Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele og gera þeir einhver bestu vín svæðisins.
Meira um framleiðandann
Rauðvín
Hvítvín