Pecorino Vellodoro
Terre di Chieti Pecorino I.G.T.
  • árgangur: 2007
  • þrúga: Pecorino
  • svæði: Abruzzo
  • verð: 2.204 kr.
  • fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni og á veitingastaðnum La Primavera

Umani Ronchi víngerðin er mikið í því að vinna í ræktun og varðveislu staðbundinna þrúga í héraði sínu Le Marche og í nágrannahéraðinu Abruzzo. Í raun má segja að öll víngerð fyrirtækisins snúist um staðbundnar þrúgur því "alþjóðlegar" þrúgur eins og Chardonnay fá aðreins rétt svo að kíkja í heimsókn þar á bæ á meðan að þrúgur eins og Verdicchio, Montepulciano, Sangiovese, Trebbiano og fleiri minna þekktar þrúgur eru í fyrirrúmi. Ein slík er þrúgan Pecorino sem Umani Ronchi bætti nýlega í safnið sitt, reyndar er þessi 2007 árgangur sem við bjóðum nú upp á sá fyrsti sem framleiddur er af víninu. Vínið er talsvert ólíkt hinu vinsæla Casal di Serra frá sama framleiðanda, ljóst á lit, þurrt og mjög steinefnaríkt. Það kemur líka frá öðru héraði, Abruzzo en Le Marche. Maturinn með víninu þarf að vera af léttara taginu, ljós og ekki of feitur fiskur og grænmetisréttir.

Til baka

Umani Ronchi
Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum.  Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele og gera þeir einhver bestu vín svæðisins.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Montepulciano, 3.090 kr.

Montepulciano og Sangiovese, 1.949 kr.


Hvítvín

Verdicchio, 2.571 kr.

Pecorino, 2.204 kr.

Verdicchio, 1.789 kr.



"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg