Lacrima er fágæt þrúga sem er ræktuð á litlu svæði um 15 kílómetra frá Adríahafsströndinni í héraðinu Le Marche. Lacrima þýðir "tár" á ítölsku og er nafnið talið tilkomið vegna þess að þegar þrúgan nær þroska þá seitlar safi út á yfirborð berjanna sem minnir á tár. Önnur kenning segir að perlulaga lögun bersins kalli fram þetta nafn eða þrúgnaklasans í heild sinni. Lacrima þrúgan er forn og uppruni óþekktur. Lengi var hefð að gera sæt vín úr þrúgunni sem er ekki skrítið í ljósi þess hversu magnaður ilmurinn er en nú eru framleidd þurr rauðvín sem mynda þá skemmtilegt jafnvægi á móti hinum blóm- og berjaríka ilmi. Umani Ronchi vínframleiðandinn heldur þessari fágætu þrúgu á lofti og gerir einmitt svona þurrt og flott matarvín með ilm sem rýkur úr glasinu meira en nokkru öðru rauðvíni sem við flytjum inn. Væri gaman að prófa með feitum kjöréttum, pylsum, parmaskinku og þess háttar eða jafnvel framandi fiskréttum eins og krabba eða austurlenskri matargerð.
Umani Ronchi
Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum. Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele og gera þeir einhver bestu vín svæðisins.
Meira um framleiðandann
Rauðvín
Hvítvín