Vín & matur
16. febrúar 2006

La Spinetta frá Piemonte
Hvað segir heimurinn um La Spinetta?
SÉRPÖNTUN: Piemontemania!
La Spinetta og Luciano Sandrone - vínsmakk á La Primavera laugardaginn 4. mars kl. 15.00
Þrjár þrúgur úr þokunni: Nebbiolo, Barbera og Dolcetto
Ný rödd á blogginu
VÍN MÁNAÐARINS: Smakkarinn fjallar um The Laughing Magpie 2003 frá d'Arenberg
 

--------------------------------------------------------------------------------


LA SPINETTA
 
Fyrir utan Gaja hefur enginn framleiðandi á Ítalíu fengið jafn margar Tre Bicchieri-viðurkenningar og LA SPINETTA í Piemonte héraði á N-Ítalíu. La Spinetta er nýjasti framleiðandinn í portfólíunni okkar.
 
Lestu um La Spinetta og nýju vínin á vefsíðu okkar og/eða líttu á vefsíðu framleiðandans.
 
 
Hvað er Tre Bicchieri? Fáðu svarið á blogginu.
 

--------------------------------------------------------------------------------


HVAÐ SEGIR HEIMURINN UM LA SPINETTA?
 
Á vefsíðu La Spinetta má finna greinar er fjalla um víngerðina og helstu víndóma.
 
Þetta segir Wineanorak.
 

--------------------------------------------------------------------------------


PIEMONTEMANIA!
 
Tvö vín frá LA SPINETTA verður hægt að kaupa í Vínbúðunum, Barbera d'Asti Ca di Pian 2003 byrjar 1. mars og Moscato d'Asti Bricco Quaglia 2005 byrjar 1. apríl. Meira verður fjallað um þau síðar.
 
Þau vín frá La Spinetta sem ekki koma til með að fást í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni verður hægt að sérpanta hjá okkur. Þau eru:
 
Barbera d'Asti Superiore 2003
Verð: 3.400 kr.
 
Barolo Campè 2001 (aðeins 12 fl. eftir)
Verð: 7.300 kr.
 
Hinn framleiðandinn okkar frá Piemonte héraðinu, LUCIANO SANDRONE, hefur þegar eignast dyggan hóp unnenda hér á landi. Eftirfarandi vín er hægt að sérpanta frá honum:
 
Dolcetto d'Alba 2004 (hættir í Vínbúðum í lok feb.)
Verð: 1.790 kr.
 
Barbera d'Alba 2003 (ný árg.)
Verð: 2.390 kr.
 
Nebbiolo d'Alba 2003
Verð: 3.000 kr.
 
Barolo Le Vigne 2001 (aðeins 12 fl. eftir)
Verð: 6.900 kr.
 
Barolo Cannubi Boschis 2001 (aðeins 6 fl. eftir)
Verð: 7.300 kr.
 
Vinsamlegast svaraðu þessum tölvupósti til að panta vínin eða sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is.
 

--------------------------------------------------------------------------------


VÍNSMAKK Á LA PRIMAVERA
 
Eitthvert magnaðasta vínsmakk sem við höfum haldið verður á La Primavera laugardaginn 4. mars kl. 15.00. Vínlistinn verður þessi:
 
Fyrsta holl:
Luciano Sandrone Barbera d'Alba 2003
La Spinetta Barbera d'Asti Ca di Pian 2003
La Spinetta Barbera d'Asti Superiore 2003
 
Annað holl:
La Spinetta Barbaresco Starderi 2001
La Spinetta Barbaresco Gallina 2001
La Spinetta Barbaresco Valeirano 2001
 
Þriðja holl:
La Spinetta Barolo Campè 2001
Luciano Sandrone Barolo Le Vigne 2001

Luciano Sandrone Barolo Cannubi Boschis 2001
 
Hámark 15 þáttakendur. Verð fyrir hvern þáttakanda er 4.000 kr og innifalið í því lystaukandi nart að hætti hússins. Þetta frábæra verð eigum við að þakka Jónínu og Leifi á La Primavera sem taka enga þóknun fyrir að hýsa og aðstoða við smakkið.
 
Láttu taka frá sæti með því að senda okkur póst á vinogmatur@internet.is eða með því að svara þessum pósti.
 

--------------------------------------------------------------------------------


ÞRJÁR ÞRÚGUR ÚR ÞOKUNNI
 
Nebbiolo er virtasta rauðvínsþrúga Piemonte héraðs og dregur nafn sitt af þokunni. Lestu um hana og hinar tvær mikilvægustu rauðvínsþrúgur héraðsins, Barbera og Dolcetto.
 

--------------------------------------------------------------------------------
 
NÝ RÖDD Á BLOGGINU
 
Valgeir er sérstakur vinur og, að því er sumir segja, velgjörðarmaður Víns & matar. Hér hefur hann orðið.
 

--------------------------------------------------------------------------------
 
VÍN MÁNAÐARINS Á SMAKKARINN.IS
 
Stefán smakkari og vínþjónn velur The Laughing Magpie 2003 frá d'Arenberg Vín mánaðarins á vefsíðu sinni www.smakkarinn.is. Skoðaðu fréttina á blogginu.
 
Margir ruku til eftir síðasta vínpóst og upp í Vínbúð eingöngu til þess að finna þar tóma hillu. Ástæðan var sú að ekki nógu margar flöskur voru pantaðar miðað við eftirspurnina. Þetta ætti nú að vera í lagi, rúmlega 100 flöskur af þessu vínin voru afhentar síðasta mánudag.

Ef þér finnst The Laughing Magpie svona gott prófaðu þá líka The Footbolt.
 
 
Njótið heil,
Arnar
 

Til baka

Vínpósturinn

Eldri Vínpóstur

16. febrúar 2006

Næsta síða


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway