Við fjöllum um vínin okkar og framleiðendur þeirra, lönd, svæði og þrúgur, gefum uppskriftir, segjum frá veitingastöðum, látum vita af vínsmökkunum og námskeiðum, montum okkur af gagnrýni sem vínin okkar hafa fengið í fjölmiðlum, bendum á áhugaverðar bækur, myndir og vefi, og ýmislegt fleira.
Póstlistaáskorun.
Takmarkinu er náð. Við stefndum að því að fjölga áskrifendum að Vínpóstinum úr 600 í 900 og það náðist á nýju brautarmeti. Eins og við lofuðum verður haldið svaka partý til að fagna þessu og lífinu yfir höfuð (auglýst síðar í Vínpóstinum).
Happdrættið heldur áfram og verður einn heppinn dreginn úr öllum hópi áskrifenda í hvert sinn sem að nýir hundrað bætast við.
1# vinningshafinn í póstlistaáskoruninni er Tryggvi Blöndal (sjá frétt)
2# vinningshafinn í póstlistaáskoruninni er Guðrún S. Hilmisdóttir (sjá frétt)
3# vinningshafinn í pólistaáskoruninni er Olga Sigrún Olgeirsdóttir (sjá frétt)
Nú eru 927 áskrifendur að Vínpóstinum.